top of page
1.png

VIÐ BYGGJUM EKKI BARA VEFSÍÐUR.
VIÐ BYGGJUM VIRK VIÐSKIPTAKERFI.

Samstarf við AACave

Bókunar- og greiðslukerfi fyrir bílaleigur, hótel, gistiheimili o.m.fl.

FoldaBassa hefur unnið náið með AACave við uppsetningu og samþættingu á bókunar- og greiðslukerfi fyrir bílaleigu í Wix Studio umhverfi.

Markmiðið var að tengja saman notendavænt viðmót, örugga greiðslugátt og sjálfvirka staðfestingu bókana, án handvirkrar vinnu.


Verkefnið fól í sér:

  • Fulla samþættingu AACave bókunarvélar í Wix Studio.

  • Sjálfvirka tengingu við Wix Payments. (Hægt er að nota hvaða greiðslu kerfi sem hentar þínum rekstri)

  • Backend lausn í Velo (Wix) til að:

    • Búa til greiðslur.

    • Staðfesta bókanir í AACave.

    • Merkja bókanir sjálfkrafa sem „Paid“.
       

  • Sjálfvirkar tölvupósttilkynningar við greiðslu og bókun

  • Gagnaskráningu (ledger) fyrir rekjanleika og öryggi

  • iFrame–samskipti (postMessage) til að samræma notendaupplifun.
     

Niðurstaðan

Kerfið keyrir nú sjálfvirkt frá A til Ö:

  1. Viðskiptavinur velur bíl.

  2. Greiðsla fer í gegnum Wix.

  3. Bókun staðfestist í AACave.

  4. Bókun merkist sem greidd.

  5. Staðfestingarpóstur sendist sjálfkrafa.
     

Allt án handvirkrar íhlutunar.

Tæknileg sérhæfing

Verkefnið krafðist djúprar þekkingar á:

  • Wix Studio & Velo backend.

  • API tengingum (REST).

  • Webhooks og payment confirmation flows.

  • Secure API key management.

  • Idempotent payment logic.

  • Gagnaskráningu og villumeðhöndlun.
     

Hvað þetta sýnir

FoldaBassa sérhæfir sig í því að tengja saman kerfi sem tala ekki sjálfkrafa saman og gera þau að einni heildarlausn.

Við byggjum ekki bara vefsíður.
Við byggjum virk viðskiptakerfi.

AaCave sameinar gæðastjórnun, verkstýringu og yfirsýn, allt í einu kerfi.

aacave.png

Hótel stjórnunarkerfi

Rekstrargreining

Sjálfvirkni sem sparar tíma

Öruggar greiðslur

bottom of page