top of page
Hafa samband
SKILMÁLAR OG SKILYRÐI
Skilmálarnir okkar og skylirðin
Afhending:
Hægt er að fá vöruna senda heim með pósti. Sendingarkostnaðurinn er frá 1290,- kr innanlands,- en til annarra Evrópulanda er hann allt frá kr. 4.000,-
Foldabassa.art áskilur sér fullan rétt vegna fyrirvaralausra verðbreytinga t.d. v/ prentvillna á heimasíðu okkar www.foldabassa.is
Öll verð eru með virðisaukaskatti.
Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 4-7 virkir dagar.
Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir greiðslu, ef það þarf ekki að breyta hönnun á vöru sem er tilbúin.
Kaupandi á rétt á að hætta við pöntun ef tafir verða á afgreiðslu á vöru sem ekki þarf að breyta og ef tafir meira en 5 dagar umfram venjulegan tíma. Við berum ekki ábyrgð á seinagangi póstsins.
Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar við afgreiðum vöruna frá okkur.
Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.
Upplýsingar um seljanda:
Ú99 ehf. kt: 6101210120 VSK-númer 141621, Bjarkarholt 2, 270 Mosfellsbær.
Foldabassa.is sérhæfir sig í hönnun á heimasíðum og markaðsefni, einnig hönnun og sölu á tækifæriskortum, boðskortum of fl vörum.
Foldabassa.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp þær vörutegundir fyrirvaralaust.
Upplýsingar viðskiptavina:
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. T.d nafn, heimilisfang og tölvupóstfang. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Útsölur og vöruskil:
Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keyptar eru á afslætti.
Vöruskil:
Ekki er hægt að skila pöntun frá Foldabassa.is nema að viðskiptavinur hafi fengið ranga vöru afhenta. Vinsamlegast hafið samband við Ísfold netfang: folda@foldabassa.art
• Gildistími inneignarnótna og gjafabréfa er 4 ár í samræmi við tilheyrandi lög, sé rekstur enn í gangi.
• Inneignarnótur og gjafabréf halda ekki gildi sínu gagnvart þeim sem Foldabassa.is kann að framselja verslunarrekstur sinn til.
Kvartanir:
Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur strax, svo við getum leyst málið. Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því hvetjum við viðskiptavini okkar til að hafa samband telji þeir að vara frá okkur eða þjónusta hafi verið ófullnægjandi.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna sé þess krafist.
Lög og varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun Ú 99 ehf á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
Virðingafyllst
Ísfold Kristjánsdóttir
Eigandi
Foldabassa.is
bottom of page